
Viltu skreyta umslög eða annað bréfsefni með fallegu innsigli að hætti konungsfólks og embættismanna miðalda? Vax innsigli eru skemmtileg leið til að loka bréfum og gefa þeim eilítið hátíðlegra yfirbragð.
Fallegt sett með þremur innsiglum, vax kubbum til að bræða, skeið til að bræða kubbana, teljósi og gyllingarpenna. Allt sem til þarf.
- Þrjú innsigli í þessu setti: Til hamingju, Gjafapakki og Good luck. Auðvelt að skipta um innsigli - öll innsiglin eru með skrúfgangi.
- Tvær flöskur með vaxkubbum til að bræða. Nota þarf 3-4 vaxkubba til að gera eitt innsigli
- Vaxkubbarnir eru í mismunandi litum. Hægt að nota aðeins einn lit í innsigli eða blanda þeim saman til að fá öðruvísi áferð.
- Gyllingarpenni til að lita upphleyptu hluta innsiglisins og ljá þeim gyllta áferð. Bíðið þar til innsiglið er orðið alveg þurrt áður en penninn er notaður.
- Skeið til að bræða vaxkubbana í.
- Teljós