Motta úr sílikoni sem hægt er að gera innsigli á. Innsiglið er þá sett á mottuna og ef það heppnast vel þá er hægt að færa það mjög auðveldlega yfir á bréf eða annan stað. Þá þarf einnig að nota tvíhliða límband sem fæst hjá okkur og innsiglið límt á bréf.
Sílikonið er þess eðlis að innsiglið festist ekki við það og því auðvelt að færa það til.
Mottan hefur þann tilgang að aðeins vel heppnuð innsigli séu notuð á bréfin. Ef innsiglið heppnast illa er hægt að henda því og þá er ekki búið að eyðileggja bréfið sem innsiglið átti að fara á.
Mottan er 10 cm í þvermál.